Sýnir færslur með efnisorðinu einfaldar uppskriftir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu einfaldar uppskriftir. Sýna allar færslur

sunnudagur, 8. júlí 2018

Hindberjasulta

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 30 mín.



Það er fljótlegt og einfalt að búa til hindberjasultu og ekki spillir ef hindberin eru tínd af trjánum með eigin höndum, í stað þess að vera innflutt frá fjarlægum heimshornum.


Innihald

1 kg hindber (ásamt laufblöðum og grænjöxlum)
smá sítrónusafi
300 g agave sýróp
200 g sykur

Aðferð

1. Hellið helmingnum af hindberjunum (ásamt nokkrum laufblöðum og grænjöxlum) í meðalstóran pott ásamt sítrónusafanum og látið suðuna koma upp. Kremjið berin með stappara og látið sjóða í fimm mínútur. Setjið berin í sigti með skál undir og síið safann vel af ásamt hlaupinu, þar til ekkert er eftir nema fræ.

2.  Setjið safann og hlaupið nú aftur í pottinn og setjið agave sýróp og sykur saman við. Hitið við vægan hita og bætið síðan við hinum helmingnum af hindberjunum. Látið suðuna koma upp og látið sjóða hressilega í fimm mínútur eða þar til blandan hefur þykknað hæfilega til að flokkast sem sulta. Leyfið henni aðeins að kólna.

3. Hellið sultunni í krukkur og setjið lok á.


laugardagur, 31. mars 2018

Gulrótastappa

Gulrótastappa
Gulrótastappa
Gulrótastappa er einfalt meðlæti og ágætis tilbreyting við t.d. kartöflustöppu. Þessi stappa rennur mjög ljúflega niður, m.a. vegna smjörsins í henni.

Undirbúningur: 10 mín. Heildartími: 30 mín.


Innihald (fyrir 4)

500 g gulrætur
4 msk smjör
1/2 bolli kjúklingakraftur eða grænmetiskraftur
salt og pipar eftir smekk
2 tsk óreganó

Aðferð

Skrælið og sneiðið gulræturnar í um eins sentimetra langa bita. Sjóðið þær í potti í 15 mínútur eða þar til auðvelt er að stinga gaffli í gegn. Síið vatnið burt og hafið gulræturnar áfram í pottinum. Bætið við smjöri, kjúklingakrafti, salti, pipar og óreganó. Stappið gulræturnar og blandið öllu vel saman. Smakkið til og bætið við salti ef með þarf.

fimmtudagur, 8. mars 2018

Hversdagsréttur Brasilíubúa - svartar baunir og grjón (feijoada com arroz)

Feijoada eða Feijão heitir hversdagsréttur með svörtum baunum, sem upprunninn er í Brasilíu. Hann er venjulega borðaður með hrísgrjónum, þaðan kemur þetta "com arroz" á portúgölskunni. Margir borða réttinn nánast daglega, en af honum eru til ýmis afbrigði. Oft er hann með pylsubitum og stundum steiktu beikoni.

Uppskriftin sem fer hér á eftir er kjötlaus og óhætt er að mæla með henni.

Hversdagsréttur Brasilíubúa
























Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 1 klst

Innihald (fyrir 5-6)

5 msk matarolía
5 gulrætur, sneiddar
2 laukar, sneiddir
1 tsk tímían
4 dósir af svörtum baunum, síuðum og skoluðum í vatni
3 tómatar, sneiddir í bita
2 bollar grænmetiskraftur
4 hvítlauksrif, fínsöxuð
1 rauður chili, fínsaxaður
1 handfylli af ferskum kóríander, söxuðum

Aðferð

Hitið olíuna í stórum potti á meðalháum hita. Setjið laukbitana, chili og tímían út í og léttsteikið í 5-6 mínútur, þar til laukurinn gyllist. Hellið svörtu baununum út í ásamt grænmetiskraftinum, tómötunum og hvítlauknum. Látið suðuna koma upp og lækkið hitann. Setjið lokið á pottinn og látið sjóða í 45 mínútur. Hrærið aðeins í annað slagið. Takið pottinn að lokum af hellunni og hrærið ferskum kóríander út í. Saltið og piprið eftir smekk.

Borið fram með t.d. hrísgrjónum eða bankabyggi. Prófaði með ómöluðu spelti (mjög svipað bankabyggi) og það kom mjög vel út.
---
Ef afgangur verður, geymist rétturinn ágætlega og auðvelt er að hita hann upp í 15 mín í potti eða setja í örbylgjuofn.

mánudagur, 29. janúar 2018

Púrrusúpa með kartöflum og lauk

Þessi súpa minnir einna helst á íslenska kjötsúpu hvað bragð og áferð snertir, en án kjötsins og hún er einfaldari að búa til, tekur rétt um 40 mínútur. Púrra er mjög sérstakt orð og ég mæli með að taka frá eina mínútu í að hugsa um það, jafnvel endurtaka orðið í huganum eða upphátt nokkrum sinnum. Smá hugleiðsla og núvitund áður en hafist er handa við eldamennskuna. Þegar þú hefur náð fullri vitund um tilvist og gildi púrrunnar í daglegu lífi er tilvalið að byrja.

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 40 mín

Innihald (fyrir sex manns)

4 gulrætur, skrældar smátt sneiddar
2 laukar, fínsaxaðir
2 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
500 g púrra, sneidd í tvennt á lengdina og síðan í ræmur á breiddina og skoluð undir vatni
300 g kartöflur
matarolía
2 súputeningar (kjúklinga- eða grænmetis-)
2 l vatn

Aðferð

Hitið olíu við háan hita í stórum potti og skellið síðan öllu sneidda grænmetinu út í (ekki kartöflunum strax). Eldið án loks í 10 mín, hrærið reglulega í þar til blandan verður mjúk. Skrælið kartöflurnar á meðan kartöflurnar og bútið þær í teninga. Setjið súputeningana í annan stóran pott með tveimur lítrum af sjóðandi vatni. Þegar teningarnir eru leystir upp skall hella blöndunni í grænmetispottinn. Bætið nú kartöflunum út í, lækkið hitann og látið sjóða í 10 mínútur með lokið á. Kryddið með salti, pipar og óreganó (fersku eða þurrkuðu eftir smekk).

laugardagur, 13. janúar 2018

Bragðmikil tómatsúpa með lauk

Þessi kraftmikla og fljótlega tómatsúpa er góð á köldum vetrardögum.

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 25 mín.

Innihald (fyrir sex manns)

4 stórir tómatar, sneiddir í litla bita
2 laukar, skrældir og sneiddir
8 hvítlauksgeirar
salt eftir smekk
1 tsk cayenne pipar
1 tsk svartur pipar
2 tsk cumin duft
6 bollar vatn
2 msk matarolía

Aðferð


1. Hitið olíuna og setjið grænmetið og kryddið út í. Látið malla í 3-5 mín við meðalhita.

2. Hellið vatninu út í, látið suðuna koma upp og sjóðið í 5-6 mín.

3. Látið súpuna kólna. Má hakka saman með stafblandara eða pressa aðeins með grænmetispressara (eða hvað sem þetta blessaða eldhúsáhald er kallað á íslensku)

4. Berið fram í skálum. Má bæta við smá smjöri eða rjóma ef vill.

Tómatsúpa með lauk

föstudagur, 15. desember 2017

Fljótleg graskerssúpa

Hér á eftir fer mjög einföld og fljótleg uppskrift að graskerssúpu.

Undirbúningur: 20 mín. Heildartími: 45 mín.

Innihald (fyrir sex manns)

2 msk matarolía
2 laukar, smátt saxaðir
1 kg grasker, skrælt, fræhreinsað og sneitt í bita
7 dl vatn
1/4 l rjómi
pipar eftir smekk
salt eftir smekk

Aðferð

1. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn við meðalhita í fimm mínútur, þar til hann verður mjúkur en ekki brúnn.

2. Bætið graskersbitunum út í og eldið áfram í 8-10 mín. og hrærið annað slagið, þar til graskerið mýkist og tekur lit.

3. Hellið vatninu og kryddinu út í. Látið suðuna koma upp og sjóðið í tíu mínútur þar til graskersbitarnir verða lungamjúkir.

4. Hellið rjómanum út í pottinn og látið suðuna aftur koma upp. Maukið nú súpuna með stafblandara eða stappara.

Berið fram með brauði.

miðvikudagur, 6. desember 2017

Indverskur svepparéttur sem meðlæti (Mushroom Bhaji)

Þessi svepparéttur með graslauk er mjög fljótgerður og virkar ágætlega sem meðlæti með kjötréttum og grænmetisréttum.
Svepparéttur

Undirbúningur
: 20 mín. Heildartími: 30 mín.

Innihald (fyrir fjóra)

300 g sveppir
4 msk matarolía
1 laukur, fínsaxaður
1 ferskur grænn chili, fínsaxaður
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 tsk cumin
1 tsk kóríanderkrydd
1/2 tsk chiliduft eða cayenne pipar
1/2 tsk salt (eða eftir smekk)
1 msk tómatmauk
3 msk vatn
1 msk graslaukur, saxaður í um 1/2 cm bita (til skrauts)

Aðferð

Skolið sveppina og sneiðið í þykkar sneiðar. Hitið olíuna í meðalstórum potti og setjið síðan lauk og chili út í og hrærið reglulega í 5-6 mín, þar til laukurinn hefur mýkst. Bætið síðan hvítlauknum við og hrærið í 2 mín. Bætið því næst kóríanderkryddi, cumin, og chilidufti, hrærið og eldið áfram í eina mínútu. Setjið sveppina, salt og tómatmaukið út í og hrærið öllu vel saman. Hellið vatninu út í og lækkið hitann. Setjið lok á pottinn og sjóðið í 5 mín, hrærið aðeins í og sjóðið aftur í fimm mínútur. Nú ætti blandan að hafa þykknað, en ef hún er mjög vökvakennd, má sjóða áfram án loks í 3-4 mín til þess að þykkja blönduna.

Setjið réttinn á diskana og skreytið með graslauknum og berið fram.

mánudagur, 20. nóvember 2017

Sjóðandi tómatréttur

Tómatar eru oftast í aukahlutverki í indverskri matargerð, en í þessum rétti fá tómatarnir sviðsljósið og eru vel að því komnir, því bragðið svíkur ekki. Rétturinn hentar vel sem aðaltéttur og hrísgrjón passa vel sem meðlæti.

Undirbúningur: 30 mín. Heildartími: 1 klst.

Innihald (fyrir fjóra)

1 ½ tsk fennel (malað eða fræ)
1 ½ tsk svört sinnepsfræ
1 ½ tsk cuminfræ
1 ½ tsk kóríanderfræ
Repjuolía
2 stk laukur, skrældir og sneiddir í tvennt og síðan í örþunnar hálfmánalaga sneiðar
1 ½ tsk salt
8 karrýlauf
1,3 kg tómatar, gjarnan blanda af litlum gulum og rauðum (koteiltómötum eða konfekttómötum)
1 ½ grænn chili, mjög smátt saxaður
4 hvítlauksgeirar, rækilega kramdir eða saxaðir
2 ½ tsk tamarind mauk
400 ml kókosjólk

Aðferð

Hitið stóra pönnu á meðalhita og þegar hitinn er kominn upp, ristið fennel(fræ), sinnepsfræ, cuminfræ og kóríanderfræ. Hristið pönnuna sífellt á nokkurra sekúndna fresti, í 1-2 mínútur, þar til kóríanderfræin verða gullinbrún. Síðan er kryddblandan sett í mortel og möluð.

Hitið fjórar matskeiðar af olíu á pönnunni og þegar hitinn er kominn upp, skellið þá möluð kryddblöndunni á ásamt lauknum, saltinu og karrýlaufinu. Steikið í 10-12 mínútur. Sneiðið litlu tómatana í tvennt eða þrennt á meðan. Setjið nú hvítlauk og chili á pönnuna og hrærið vel í tvær mínútur. Síðan fylgja tamarind og kókosmjólk og hræra skal vel saman. 

Setjið tómatana því næst út í og eldið við miðlungshita í 20-25 mínútur án þess að hræra. Þannig halda tómatarnir forminu og draga betur í sig kókosmjólkina. Fyrir þá sem vilja enn bragðsterkari rétt má steikja nokkur karrýlauf í viðbót á lítilli pönnu og hella út í. Réttinn má bera fram með hrísgrjónum eða chapati pönnukökum.

sunnudagur, 24. september 2017

Grænmetissúpa með sveppum og kartöflum

Á haustin og veturna er hressandi að fá sér matarmikla súpu. Hér á eftir fer bragðgóð grænmetissúpa með sveppum, kartöflum og lauk.

Undirbúningur: 40 mín. Heildartími: 40 mín.

Innihald

2 msk matarolía
1 laukur, fínsaxaður
1 hvítlauksgeiri, fínsaxaður
1 msk tímían
3 meðalstórar kartöflur, skrældar og sneiddar í litla bita
600 g sveppir (af mismunandi tegundum ef vill), saxaðir
5 bollar grænmetiskraftur
1/4 l rjómi
salt og pipar eftir smekk
stenselja (ef vill)

Aðferð

Hitið olíuna í stórum potti á meðalhita. Setjið lauk, hvítlauk og tímían út í. Eldið í fimm mínútur og hrærið jafnt og þétt. Bætið næst kartöflunum út í og eldið aftur í fimm mínútur.

Hækkið hitann upp í topp, bætið við sveppunum og eldið í fimm mínútur enn. Skellið næst grænmetiskraftinum út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið sjóða í 10 mínútur, en hrærið annað slagið.

Maukið súpuna (t.d. í matvinnsluvél eða handvirkt með stappara) og hellið síðan aftur í pottinn. Nú má bæta við salti og pipar og láta malla aðeins í viðbót við vægan hita.

Skreytið með smá tímían og stenselju og berið a borð með brauði.

sunnudagur, 10. september 2017

Ofnbakað rótargrænmeti

Nú er komin ný uppskera af rótargrænmeti í verslanir, t.d. kartöflur, rófur og gulrætur. Þá er tilvalið að taka fram eldfast mót og skræla og sneiða eins og enginn væri morgundagurinn. Hér kemur uppsrift að ofnbökuðu rótargrænmeti.

Undirbúningur: 30 mín. Heildartími: 1 klst. og 10 mín.

Innihald

1 kg blandað rótargrænmeti (t.d. kartöflur, gulrætur og rófur)
2 msk. ólívuolía
3 msk. hunang
1 appelsína
tímían (ferskt eða þurrkað)
salt og pipar

Aðferð

Skrælið rótargrænmetið og skerið niður í teninga. Smyrjið eldfast mót með olíu og hunangi, setjið grænmetið í og pressið/kreistið appelsínuna yfir. Restina af appelsínunni má sneiða og setja með í mótið. Kryddið með salti, pipar og tímían. Bakið í ofni við 190 gráður í 40 mínútur, eða þar til grænmetið verður gullinbrúnt. Verði ykkur að góðu!

Ofnbakað rótargrænmeti

föstudagur, 1. september 2017

Rifsberjahlaup með hunangi

Undirbúningur: 15 mín Heildartími: 30 mín.

Hér er mjög einföld uppskrift að rifsberjahlaupi með hunangi í stað sykurs.


Innihald

1 kg rifsber (með stilkum og laufblöðum)
1 dl vatn
4 msk hunang


Aðferð

Notið vel þroskuð ber með slatta af stilkum og laufblöðum (til þess að gera hlaupið hlaupkennt). Skolið og setjið í pott og hellið vatninu yfir (1 dl fyrir hvert kíló af berjum). Látið suðuna koma upp og sjóðið svo við vægan hita þar til þetta verður að mauki.

Bætið nu við 4 msk af hunangi fyrir hvert kíló af berjum. Hrærið öllu vel saman og látið sjóða aftur í nokkrar mínútur. Sigtið síðan maukið og skiljið stilkana og laufblöðin frá. Setjið að lokum beint í litlar hreinar glerkrukkur til geymslu.

Geymist í ísskáp eða á öðrum köldum stað.

Rifsberjarunni
Rifsber

sunnudagur, 20. ágúst 2017

Dal Makhani (indverskur linsubaunaréttur)

Dal Makhani er linsubaunaréttur sem á rætur að rekja til Punjab héraðs nyrst á Indlandi. Hann lítur ekki girnilega út en bragðið svíkur engan. Undirbúningur hefst deginum aður með því að setja nýrnabaunir og linsubaunir í vatn og inn í ísskáp.

Undirbúningur: 8 klst. Heildartími: 9 klst.
Dal Makhani, hrísgrjón og salat

Innihald

1 bolli heilar urad linsubaunir
1/4 bolli nýrnabaunir
4 bollar vatn
1 meðalstór laukur (fínsaxaður)
2 grænir chili (fínsaxaðir)
3 hvítlauksgeirar (fínsaxaðir)
2 stórir tómatar (saxaðir)
1/2 tsk. cuminfræ
2-3 negulnaglar
1/2 tsk. chiliduft
2-3 msk. rjómi
3 msk. smjör
salt eftir smekk

Aðferð

Látið linsubaunirnar og nýrnabaunirnar liggja í bleyti yfir nótt. Hellið vatninu af, skolið og setjið í hraðsuðupott. Hellið fjórum bollum af vatni yfir baunirnar og sjóðið í 15-20 mín. Léttið á þrýstingnum í pottinum og hellið vatninu af þegar hann er farinn. Skolið baunirnar aftur og setjið svo aftur í hraðsuðupottinn. Hellið aftur fjórum bollum af vatni yfir baunirnar, ásamt tómötunum, smjöri, hvítlauk, chilidufti, rjóma og salti. Hrærið vel saman.

Sjóðið nú aftur í 15-20 mín á háum eða meðalhita. Léttið á þrýstingnum og athugið þykktina á réttinum. Linsubaunirnar ættu nú að vera alveg eldaðar og mjúkar. Látið nú malla án loks á lágum til meðalhita, þar til þykktin nær jafnvægi og mýkt. Kremjið nokkrar linsubaunir til þess að þykkja blönduna. Linsubaunirnar eiga nú að vera nógu mjúkar til að bráðna í munni. Smakkið og bætið við salt eða chilidufti ef með þarf. Látið nú malla í 15-18 mín. í viðbót þar til þykktin verður mátuleg. 

Berið réttinn fram með hrísgrjónum, nanbrauði eða roti pönnnukökum. 


föstudagur, 11. ágúst 2017

Arabískur pastaréttur (Penne al'arrabiata)

Penne al'arrabiata er einfaldur pastaréttur sem rífur aðeins í bragðlaukana. Uppistaðan er "penne" pasta og tómata- og chilisósa. Blandan með ferskum basil kom mér mjög skemmtilega á óvart fyrst þegar ég prófaði.

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 30 mín.


Innihald
Penne al'arrabiata

6 msk. matarolía (ólívuolía eða repjuolía)
2 stk. gulir chili (fínsaxaðir)
2 hvítlauksgeirar (saxaðir)
handfylli af basillaufum
600 g niðursoðnir tómatar
salt eftir smekk
400 g penne pasta
parmesan eftir smekk

Aðferð

Hitið matarolíuna á stórri pönnu og bætið chili og hvítlauk út á. Látið malla í eina mínútu og bætið síðan við basillaufunum. Hrærið þeim varlega saman við. Takið blönduna af pönnunni og leggið til hliðar. Setjið tómatana nú á pönnuna og síðan blönduna saman við. Látið malla í a.m.k. 10 mínútur, þar til sósan hefur þykknað sæmilega. Bætið við salti eftir smekk.

Sjóðið pastað á sama tíma í stórum potti með söltu vatni með slurki af ólívuolíu. Hellið vatninu af pastanu og hellið sósunni yfir. Stráið parmesan yfir og berið á borð.



sunnudagur, 6. ágúst 2017

Rajma (indverskur nýrnabaunaréttur)

Rajma er virkilega bragðgóður grænmetisréttur úr nýrnabaunum og einn af bestu réttunum sem ég smakkaði á Indlandi. Það er hægt að nota niðursoðnar nýrnabaunir og undirbúa réttinn samdægurs en ég nota venjulega þurrar nýrnabaunir, sem ég læt þá fyrst liggja í bleyti inni í ísskáp yfir nótt. Rétturinn hentar vel með hrísgrjónum eða nanbrauði.

Undirbúningur: 8 klst (eða 5 mín með niðursoðnum nýrnabaunum)  Heildartími: 9 klst. (eða 35 mín með niðursoðnum nýrnabaunum)


Innihald

150 g nýrnabaunir
2 meðalstórir laukar (saxaður)
2 stórir tómatar (sneiddir í litla bita)
2 grænir chili (smátt saxaðir)
1 cm ferskt engifer (smátt saxað)
1 tsk kóríanderkrydd
1/2 tsk garam masala
1 tsk salt
Dass af ferskum kóríander (ef vill)

Aðferð

Leggið nýrnabaunirnar í skál með vatni inn í ísskáp og látið standa yfir nótt (sleppið ef notaðar eru niðursoðnar baunir).

Sjóðið baunirnar í hraðsuðupotti í hálftíma. Hitið olíu í stórum potti og bætið síðan við söxuðum lauk og engifer. Steikið þar til laukurinn verður gullinbrúnn. Bætið tómötunum við ásamt grænum chili og sjóðið þar til blandan verður hlaupkennd. Bætið nú við kóríanderkryddi, salti og tveimur bollum af vatni og sjóðið vel. Bætið næst við nýrnabauninum úr hraðsuðupottinum eða dósinni og sjóðið við vægan hita í 10 mínútur. Stráið garam masala yfir réttinn og sjóðið í 15 mínútur í viðbót þar til blandan þykknar.

Skreytið að lokum með ferskum kóríander og berið fram með hrísgrjónum eða nanbrauði.

Rajma (indverskur nýrnabaunaréttur)


sunnudagur, 23. júlí 2017

Indverskar matarpönnukökur (Aloo Paratha)

Meðal þess besta sem ég hef smakkað úr indverskri matargerð eru þykkar matarpönnukökur með grænmetisfyllingu. Það eru til ýmsar útgáfur með mismunandi grænmeti, s.s. með gulrótum, lauk, hvítlauk og engifer. Þessi útgáfa er með þeim einfaldari með fyllingu úr kartöflum, chili o.fl. Það er hægt að elda þær t.d. á venjulegri steikarpönnu og þær geta verið í morgunmat, hádegismat eða kvöldmat eftir smekk hvers og eins.


Innihald


Fylling

4-5 kartöflur
1 msk. matarolía
1/2 tsk. cuminfræ
1/4 tsk. túrmerik
2-3 grænir chili, fínsaxaðir
dass af ferskum kóríander, fínsöxuðum
1/2 tsk. Garam Masala
salt eftir smekk


Deig

2 bollar hveiti
1 msk smjör eða matarolía
salt eftir smekk
2 msk. (grísk) jógúrt
vatn sem nægir til að gera deig
2-3 tsk smjör eða olía til steikingar

Aðferð


Fylling

Hitið olíu á pönnu og bætið við cuminfræum, takið af hellunni þegar fer að braka í fræunum. Sjóðið kartöflur (hægt að sjóða í örbylgjuofni til að flýta fyrir). Kælið kartöflurnar, skrælið og stappið þær. Bætið nú við öllum hinum innihaldsefnunum í fyllinguna og cumin af pönnunni og blandið vel saman. Blandan ætti að vera þurr og vatnslaus. Annars verður erfitt að fletja út pönnukökurnar. Leggið blönduna til hliðar.


Deig

Setjið hveitið í skál og bætið við salti og smjöri/olíu og jógúrt. Bætið vatninu við smátt og smátt. Hnoðið vel saman í meðalmjúkt deig. Setjið rakan klút yfir og látið deigið standa í 20-30 mín. Hnoðið deigið nú aftur.


Að fletja út pönnukökurnar

Skiptið deiginu upp í litlar kúlur og fletjið þær síðan út með kökukefli í litlar pönnukökur. Setjið fyllinguna á pönnukökurnar og formið þær utan um fyllinguna, fyrst eins og litla skál og lokið svo þannig að úr verði kúla með fyllingu. Stráið smá hveiti á og fletjið út í pönnuköku á ný. Steikið nú á pönnunni með smá smjöri/olíu þannig að pönnukökurnar verði gullinbrúnar á báðum hliðum. Berið að lokum fram heitar, brakandi og gómsætar pönnukökur.

laugardagur, 22. júlí 2017

Indverskur morgunverður (Aloo Poha)

Poha er mjög einfaldur, léttur og bragðgóður réttur sem fljótlegt er að elda. Hann á rætur að rekja til norðurhluta Indlands og er vinsæll á heimilum og fæst stundum líka tilbúinn á götuhornum sem "street food". Aðalhráefnið í réttinn eru hrísgrjónaflögur eða flöt hrísgrjón (e. beaten rice eða rice flakes). Það gæti reynst erfitt að finna á Íslandi en ég hef pantað á netinu með ágætum árangri og þetta fékkst á sínum tíma hjá Indía Sól á Suðurlandsbraut (en ég er ekki viss um að sú búð sé starfandi lengur). Uppskriftin fer hér á eftir:

Undirbúningur: 10 mín. Heildartími: 30 mín.

Indverskt PohaInnihald

1/4 tsk svört sinnepsfræ
1 msk hnetur (má nota salthnetur)
4 msk matarolía
2 bollar Poha (hrísgrjónaflögur)
1 meðalstór kartafla
1 laukur
2 grænir chili
1/2 tsk túrmerik
smá sítrónusafi
nokkur karrýlauf (má sleppa)
ferskt kóríander
salt eftir smekk


Aðferð

Setjið poha (hrísgrjónaflögurnar) í sigti og bleytið vel og skolið með vatni. Síið vatnið frá og setjið túrmerik og salt yfir þær og leggið til hliðar.

Fínsaxið lauk chili og kóríander. Sneiðið kartöfluna í litla teninga og eldið þá í örbylgjuofni í tvær mínútur.

Hitið matarolíu á pönnu og bætið við sinnepsfræum, hnetum og karrýlaufum. Steikið þar til fer að braka aðeins í þeim. Bætið næst við chili, lauk og kartöflubitunum. Hrærið vel saman og bætið við salti eftir smekk. Látið malla á meðalhita í nokkrar mínútur.

Eldið þar til laukurinn verður gullbrúnn og kartöflurnar mjúkar. Bætið nú við kóríander og poha og hrærið öllu vel saman. Eldið við vægan hita í 5-10 mínútur.

Takið pottinn nú af hellunni og leyfið réttinum aðeins að kólna. Sprautið að lokum smá sítrónusafa yfir og dassi af söxuðum kóríander. Nú er Aloo Poha tilbúinn.
Aloo Poha

föstudagur, 7. júlí 2017

Basilpestó (grænt pestó)

Undirbúningur: 10 mín. Heildartími: 15 mín.
Ferskt basil er fallega grænt og sumarlegt á að líta. Spænt niður í pestó bragðast það mjög vel. Hér á eftir fer uppskrift að fljótlegu og einföldu basilpestói.

Grænt pestó

Innihald

100 g grænt basil
2-3 hvítlauksrif
1/2 tsk salt
1/2 bolli furuhnetur (má nota möndlur eða jarðhnetur í staðinn)
1/2 bolli rifinn parmesan
1/4 bolli ólífuolía eða repjuolía

Aðferð

Hakkið basil, hvítlauk, salt og furuhnetur saman. Bætið síðan við parmesan og að lokum matarolíu. Hrærið þar til maukið verður eins og þykk sósa. Látið að lokum þunnt lag af olíu fljóta yfir, þannig geymist pestóið betur.
Basilpestó á brauð



mánudagur, 19. júní 2017

Bananabrauð

Undirbúningur: 10 mín. Heildartími: 55 mín.
Ágæt leið til að nýta brúna og slappa banana er að stappa þá í mauk og nota þá í bananabrauð. Hér er uppskrift að bananabrauði sem baka má í tveimur ílöngum kökuformum.

Innihald

2 egg
2 dl sykur
2 dl hunang
4 maukaðir bananar
2 tsk salt
1 tsk matarsódi
2 tsk kanill (má sleppa)
1 lúka af rúsínum (má sleppa)
6 dl hveiti
6 dl spelt

Aðferð

Þeytið egg og sykur vel saman með pískara. Stappið banana í mauk og hrærið þeim saman við sykruðu eggjablönduna. Blandið þurefnunum saman í skál. Hrærið þeim síðan varlega saman við eggjagumsið. Setjið í tvö ílöng bökunarform og bakið í 45 mín. við 180 gráður á blæstri.

Bananabrauð með rúsínum


laugardagur, 10. júní 2017

Indverskur hvítkáls- og kartöfluréttur

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 30 mín.
Indverjar kunna að elda ótrúlegustu rétti úr kartöflum og kryddi. Uppistaðan í þessum einfalda og fljótlega grænmetisrétti eru kartöflur, hvítkál og laukur. Sem meðlæti má t.d. nota nanbrauð, hrísgrjón eða kartöflupönnukökur (parathas).

Innihald

1 hvítkálshaus
2 msk matarolía
2-3 meðalstórar kartöflur, sneiddar í litla teninga
1 meðalstór laukur
¾ tsk cuminfræ
¾ tsk svört sinnepsfræ
½ tsk túrmerik
½ tsk kóríander
Kókosflögur eða kókosmjólk (valkvætt)
Ferskur kóríander (valkvætt)

Aðferð

1. Brytjið hvítkálið í ræmur eða teninga
2. Hitið olíu á stórri pönnu á meðalhita
3. Bætið við cumin og sinnepsfræum þegar olían er orðin heit
4. Bætið við fínt söxuðum lauk
5. Leyfið lauknum að mýkjast og skellið næst brytjaða hvítkálinu á pönnuna
6. Bætið við salti, túrmerik og kóríander
7. Setjið lokið á pönnuna, lækkið hitann aðeins og leyfið þessu að malla þar til kálið verður mjúkt
8. Þegar kálið hefur skroppið saman, bætið kartöfluteningunum út í og eldið áfram á meðalhita þar til kartöflurnar verða mjúkar (hrærið við og við)
9. Ef þið viljið, bætið kókosflögunum eða kókosmjólkinni út á og látið malla aðeins lengur
10. Skreytið með ferskum kóríander
11. Berið á borð 

indverskur matur
Indverskur hvítkáls- og kartöfluréttur