Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 30 mín.

Það er fljótlegt og einfalt að búa til hindberjasultu og ekki spillir ef hindberin eru tínd af trjánum með eigin höndum, í stað þess að vera innflutt frá fjarlægum heimshornum.

Það er fljótlegt og einfalt að búa til hindberjasultu og ekki spillir ef hindberin eru tínd af trjánum með eigin höndum, í stað þess að vera innflutt frá fjarlægum heimshornum.
Innihald
1 kg hindber (ásamt laufblöðum og grænjöxlum)
smá sítrónusafi
300 g agave sýróp
200 g sykur
Aðferð
1. Hellið helmingnum af hindberjunum (ásamt nokkrum laufblöðum og grænjöxlum) í meðalstóran pott ásamt sítrónusafanum og látið suðuna koma upp. Kremjið berin með stappara og látið sjóða í fimm mínútur. Setjið berin í sigti með skál undir og síið safann vel af ásamt hlaupinu, þar til ekkert er eftir nema fræ.
2. Setjið safann og hlaupið nú aftur í pottinn og setjið agave sýróp og sykur saman við. Hitið við vægan hita og bætið síðan við hinum helmingnum af hindberjunum. Látið suðuna koma upp og látið sjóða hressilega í fimm mínútur eða þar til blandan hefur þykknað hæfilega til að flokkast sem sulta. Leyfið henni aðeins að kólna.
3. Hellið sultunni í krukkur og setjið lok á.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli