Tíkort er einfalt spil sem ég spilaði oft við ömmu, afa og frændfólk í sveitinni í æsku. 3-5 geta spilað í einu og spilið er 10 umferðir. Í fyrstu umferð eru gefin 10 spil á mann, í annarri níu og svo koll af kolli niður í eitt spil á mann í lokaumferðinni.
Þegar búið er að skipta spilunum milli spilara er dregið tromp úr stokknum sem eftir er. Spilarar skoða spilin sín og áætla hvað þeir geti unnið marga slagi á þau. Ásinn er hæstur og oft má áætla slagi á mannspil og sömuleiðis á trompspil. Þegar allir spilarar hafa áætlað fjölda slaga banka þeir tvisvar í borðið með báðum höndum og í þriðja "banki" sýna þeir fjölda slaga sem þeir hugsa sér að fá á spilin sín. Ritari (sem getur verið einn spilara) skrifar fjölda pantaðra slaga fyrir hvern spilara á blað. Sá á fyrstur leik sem er á eftir þeim sem gaf (röðin gengur sólarhring).
Ef spilari fær jafnmarga slagi og hann pantaði fær hann stig sem nema fjölda slaga plús 10, þ.e. ef spilari pantar þrjá slagi og fær þrjá slagi, þá gefur það 13 stig. Ef spilari fær fleiri eða færri slagi en hann pantaði fær hann ekkert stig. Að loknum umferðunnum 10 eru stigin lögð saman og sá vinnur sem fær flest stig samanlagt.
Dæmi: Jón, Gunna og Bína spila fyrstu umferð með 10 spil á mann og tígul sem tromp. Jón er með tvö tromp og fjögur mannspil og pantar fimm slagi. Gunna er með tvo ása, tvö mannspil og tvö lág tromp og pantar fjóra slagi. Bína er með þrjá gosa og tvö tromp og pantar þrjá slagi. Samtals eru því pantaðir 12 slagir, en aðeins 10 slagir eru í boði. A.m.k eitt þeirra mun því fá of fáa slagi í fyrstu umferð.