Í heimilisfræðitíma í grunnskóla lærði ég að sjóða egg svona:
Setja egg í pott og fylla hann þar til flýtur yfir eggin. Salta smá í pottinn og setja lokið á. Láta suðu koma upp, lækka hitann og sjóða svo í 8-10 mín. Hella heita vatninu úr og köldu vatni yfir í staðinn og brjóta skurnina af. Ég held að flestir noti þessa aðferð. En betri leið, sem sparar tíma, vatn og rafmagn, er svona:

- Setja egg í pott með þéttu loki (ekkert loftgat)
- Setja 3-5 mm yfirborð af vatni (þ.e. ekki láta fljóta yfir eggin)
- Láta suðu koma upp og sjóða svo í 6-7 mín.
- Hella köldu vatni yfir og brjóta skurnina af
Eggin eru þannig soðin fyrst og fremst með gufunni í stað vatnsins og verða meðalsoðin (ekki linsoðin, ekki harðsoðin), hvítan þéttist og rauðan verður frekar lin en ekki fljótandi eins og í linsoðnum eggjum. Suðan kemur fyrr upp vegna þess að það þarf minni orku til þess að sjóða svo lítið magn vatns.
Fyrir linsoðin egg er nóg að sjóða í 4-5 mínútur en harðsoðin 8-9 mínútur.
Fyrir linsoðin egg er nóg að sjóða í 4-5 mínútur en harðsoðin 8-9 mínútur.
![]() |
Soðin egg, í sáralitlu vatni |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli