Um daginn fór ég
út í búð og ætlaði að kaupa þvottaefni. Eina þvottaefnið sem þar var í boði var
Ariel svo ég keypti það. Það virtist frekar dýrt við fyrstu sýn en ég hafði
engan samanburð í búðinni og tók það í staðinn fyrir að fara í aðra búð að
finna annað. Þegar heim var komið gerði ég verðsamanburð og sá að ég hafði
borgað tvöfalt meira fyrir þvottaefnið en ég borga venjulega fyrir engu síðri
þvottaefni annarra framleiðenda. Ariel er eitt þeirra merkja sem selt er hærra
verði í krafti sterkrar stöðu sinnar á markaðnum, án þess að verðmunurinn
endurspegli endilega gæðamun. Álagning þessarar búðar hefur væntanlega líka
verið há.
Þvottaefni fyrir
fatnað eru misjöfn að verði og gæðum. Fólk er oft tilbúið að borga meira
fyrir gæði. En spurningin er hvort Ariel er betra en ódýrari þvottaefni
keppinauta. Hvað felst í því að vera betri? Góðir þvottaeiginleikar eru eflaust
það mikilvægasta sem fólk gerir kröfu um ásamt verði. Aðrir þættir sem vert er
að huga að eru umhverfisáhrif og áhrif á heilsu, t.d. forðast fólk þvottaefni
sem það hefur ofnæmi fyrir.
Á stærri mörkuðum
erlendis, s.s. í Þýskalandi, Bretlandi og Danmörku er hefð fyrir vöruprófunum,
þar sem óháðir aðilar prófa vörur í sömu flokkum hver gegn annarri. Lítið er um
slíkar prófanir á Íslandi, líklega vegna smæðar markaðarins, kannski helst að
fjölmiðlar geri slíkar prófanir en þær eru sjaldnast markvissar eða staðlaðar á
nokkurn hátt. Helst að prófaðir séu t.d. mismunandi jólabjórar af nokkrum
álitsgjöfum og einkunnir gefnar. Þetta getur gefið vísbendingar fyrir neytendur
en segir þó kannski mest um smekk álitsgjafanna, en minna um hvað hverjum og
einum bjórunnanda úti í bæ kann að líka.
Vöruprófanir
erlendis mæla gjarnan þá eiginleika sem neytendur gera kröfu um í hverjum
vöruflokki fyrir sig. Fyrir þvottaefni geta þetta verið t.d. þvottaeiginleikar,
verð og umhverfisáhrif. Fyrir hvern þátt er gefin einkunn og svo er reiknað
meðaltal þáttanna til þess að fá heildareinkunn hverrar vöru.
Góðir valkostir í
stað Ariel í íslenskum verslunum eru t.d.:
·
Milt
þvottaefni frá Mjöll Frigg
o
mengar
minna því það þarf ekki að flytja það til landsins
o
umhverfisvænt,
án ilmefna og ofnæmisvaldandi efna
·
Neutral
(ofnæmisprófað, lyktarlaust og umhverfisvænt)
Auglýsingar í
sjónvarpi á borð við Mr. Proper með gljáfægðan skallann og glansandi gólf eða
Vanish þar sem óhreinindin hverfa (rauðvín, hakk og spagettí, smurolía og
hvaðeina hverfur úr hvítu buxunum!) hafa í gegnum tíðina verið helstu opinberu
upplýsingar sem Íslendingar fá um þvottaefni. En það er ágætt að hugsa sig
aðeins um og gera samanburð áður en maður gleypir við auglýsingaboðskap.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli