miðvikudagur, 20. september 2017

Reiðufé og kreditkort

Á Íslandi kjósa flestir að greiða fyrir vörur og þjónustu með kreditkortum. Í því felast ýmis þægindi, m.a. að losna við íþyngjandi klink. Einnar krónu myntir hafa tilhneigingu til að safnast upp og þyngja veskið. Annar kostur við kreditkort er að þau gera fólki auðveldara að fylgjast með eyðslu sinni vegna þess að hver færsla er skráð í kerfið. Með þessu móti má auðveldlega rýna betur í eyðslu sína og taka ákvarðanir um hvar megi skera niður og spara og eins gera áætlanir um framtíðarútgjöld. Meniga er mjög sniðug þjónusta til þess að fylgjast með útgjöldum eftir flokkum og að gera fjármálaáætlanir út frá eyðslu fortíðar. Þetta er þjónusta sem ég sakna frá Íslandi, í Þýskalandi hef ég tamið mér að greiða næstum allt með reiðufé eins og innfæddir og sambærileg þjónusta við Meniga er ekki í boði eftir því sem ég best veit.

Hvers vegna að greiða með reiðufé?

Sú ástæða sem oftast er nefnd fyrir því að Þjóðverjar kjósa að greiða með reiðufé er að vilja ekki láta rekja færslur sínar, þ.e. að þær séu skráðar í tölvukerfi fjármálastofnana. Annar kostur við að nota reiðufé er að það gefur fólki betri tilfinningu fyrir útgjöldum og upphæðum. Þetta sýna rannsóknir og ástæðan er einfaldlega sú að sjónrænt og sálrænt gerir fólk sér betur grein fyrir upphæðunum sem það eyðir þegar þær eru á formi seðla og klinks í stað þess að plasti sé rennt í gegnum tæki og kort þannig „straujað“. Önnur ástæða fyrir mikilli notkun reiðufjár er sú að enn eru ýmis fyrirtæki sem neita að taka við kortum, þetta á t.d. við um marga veitingastaði og sumar matvörubúðir. En reiðufé er frekar gamaldags og gæti hugsanlega horfið á næstu árum.

Nýtt kortatímabil!

Oft heyrði ég auglýsingar í útvarpi á Íslandi um „nýtt kortatímabil!“ eins og það væri eftirsóknarvert. Nýtt kortatímabil þýðir í raun bara endurnýjað færi á að eyða um efni fram, nýtt færi á að eyða núna, borga seinna sem þýðir að velta vandamálum inn í framtíðina. Þetta er í svipuðum stíl og auglýsingar banka um árið sem beindust að námsmönnum um að „yfirdrátturinn brúaði bilið!“ eða „Ekki gefast upp! Það er hægt“ um fjármögnun fyrstu fasteignakaupa hjá Íslandsbanka.

Fólk eyðir meira með því að fresta skuldadögum inn í framtíðina. Þetta á bæði við um smærri lán eins og yfirdrátt á kreditkortum og stærri lán á borð við fasteignalán og námslán. Það er sama hvaða nafni lánið er kallað, oftast er skynsamlegra að sleppa því. Fólk þarf sjaldnast þá hluti sem það borgar með yfirdrætti og það kann að vera betri kostur að flytja úr landi en að gerast skuldaþræll banka á Íslandi og borga tvöfalt verð fyrir íbúð með því að greiða upp fasteignalán sem „er hægt!“. Að eitthvað sé hægt þýðir ekki að það sé skynsamlegt. En það er líka hægt að fara skuldugur í gröfina og skilja afstandendur eftir með reikninginn, allt hægt ef viljinn er fyrir hendi eins og maðurinn sagði. Þannig væri líklega nútímaútgáfan af höfðingjum Víkingaaldar sem létu grafa sig í haug með vopnum og öðru drasli sínu. Nútímamaðurinn getur látið grafa sig með fellihýsi, flatskjá, tískufötum og skuldum!

1 ummæli:


  1. Halló,
    Ertu að leita að virtur lánveitanda, þreyttur á að vera lækkaður af bankum og veð, ertu þreyttur að leita að fjármunum til að fjármagna fyrirtæki þitt eða ert þú fjárhagslega vandræðalegur að þú getir ekki borgað skuldina þína og víxla? Finnst þér að fá fjárhagsaðstoð? á meðan þú drífar ekki núna og grípa tryggt og tryggt lán í dag, hafðu samband við okkur með tölvupósti: dantecooperativehelp@hotmail.com, fyrir fljótlegt spjall eða whatsapp / +35677926593.

    SvaraEyða