Svínakjötið smellpassar í þessum rétti, soðið í þykkri tamarindsósu, mjúkt undir tönn og rennur ljúflega niður. Þetta er frekar einfaldur réttur að búa til miðað við marga aðra, en bölvað vesen miðað við flesta rétti á þessu bloggi, tekur vel á annan tíma allt í allt með biðtíma.
Undirbúningur: 30 mín. Heildartími: 1 klst og 40 mín.
Undirbúningur: 30 mín. Heildartími: 1 klst og 40 mín.
55 g (þurrkað) tamarind, skorið gróflega
0,5 l soðið vatn
2 ferskir grænir chili, fræhreinsaðir og sneiddir gróflega
2 laukar, skornir gróft
2 hvítlauksrif, gróflega sneidd
1 cm engifer, gróflega sneitt
1 stilkur af sítrónugrasi, gróft skorið
2 msk smjör eða matarolía
1 msk kóríanderduft
1 tsk túrmerik
1 tsk kardemommuduft
1 tsk chiliduft eða cayenne pipar
1 kanilstöng eða 1 tsk kanill
1 kg svínakjöt, sneitt í teninga
1 msk ferskt kóríander (+ aukamagn til skrauts ef vill)
lítill þunnt sneiddur rauður chili til þess að skreyta ef vill
Aðferð
Setjið tamarindbitana í litla skál og hellið sjóðandi vatninu yfir. Látið liggja í hálftíma. Hellið vatninu í gegnum sigti í meðalstóra skál og pressið tamarindhlaupið í gegn eins og hægt er með sleif. Hendið restinni úr sigtinu (steinum og trefjum). Setjið því næst eina matskeið af tamarindvökvanum í matvinnsluvél ásamt grænum chili, lauk, hvítlauk, sítrónugrasi og engifer og maukið rækilega þannig að úr verði mjúkt þykkni. Hitið því næst smjörið eða olíuna í stórum potti og skellið fersku laukmaukinu út í ásamt kóríanderdufti, túrmerik, kardemommudufti, chilidufti (eða cayenne) og kanildufti eða -stöng. Hrærið vel í og blandið saman í tvær mínútur. Skellið nú svínakjötinu út í og hrærið hraustlega og stöðugt þar til bitarnir verða gullinbrúnir og ríkulega þaktir í kryddblöndunni. Hellið afganginum af tamarindvökvanum nú út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið sjóða í hálftíma með lokinu á. Takið lokið af og látið aftur sjóða í hálftíma, en nú án loksins, þar til svínakjötið verður mjúkt. Stráið nú fersku kóríander og þunnt sneiddum rauðum chili yfir.
Berið fram með hrísgrjónum, kartöflum eða brauði.
Berið fram með hrísgrjónum, kartöflum eða brauði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli