mánudagur, 29. janúar 2018

Púrrusúpa með kartöflum og lauk

Þessi súpa minnir einna helst á íslenska kjötsúpu hvað bragð og áferð snertir, en án kjötsins og hún er einfaldari að búa til, tekur rétt um 40 mínútur. Púrra er mjög sérstakt orð og ég mæli með að taka frá eina mínútu í að hugsa um það, jafnvel endurtaka orðið í huganum eða upphátt nokkrum sinnum. Smá hugleiðsla og núvitund áður en hafist er handa við eldamennskuna. Þegar þú hefur náð fullri vitund um tilvist og gildi púrrunnar í daglegu lífi er tilvalið að byrja.

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 40 mín

Innihald (fyrir sex manns)

4 gulrætur, skrældar smátt sneiddar
2 laukar, fínsaxaðir
2 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
500 g púrra, sneidd í tvennt á lengdina og síðan í ræmur á breiddina og skoluð undir vatni
300 g kartöflur
matarolía
2 súputeningar (kjúklinga- eða grænmetis-)
2 l vatn

Aðferð

Hitið olíu við háan hita í stórum potti og skellið síðan öllu sneidda grænmetinu út í (ekki kartöflunum strax). Eldið án loks í 10 mín, hrærið reglulega í þar til blandan verður mjúk. Skrælið kartöflurnar á meðan kartöflurnar og bútið þær í teninga. Setjið súputeningana í annan stóran pott með tveimur lítrum af sjóðandi vatni. Þegar teningarnir eru leystir upp skall hella blöndunni í grænmetispottinn. Bætið nú kartöflunum út í, lækkið hitann og látið sjóða í 10 mínútur með lokið á. Kryddið með salti, pipar og óreganó (fersku eða þurrkuðu eftir smekk).

sunnudagur, 21. janúar 2018

Að sjóða egg - linsoðin egg, harðsoðin og mitt á milli

Í heimilisfræðitíma í grunnskóla lærði ég að sjóða egg svona:
Setja egg í pott og fylla hann þar til flýtur yfir eggin. Salta smá í pottinn og setja lokið á. Láta suðu koma upp, lækka hitann og sjóða svo í 8-10 mín. Hella heita vatninu úr og köldu vatni yfir í staðinn og brjóta skurnina af. Ég held að flestir noti þessa aðferð. En betri leið, sem sparar tíma, vatn og rafmagn, er svona:
  • Setja egg í pott með þéttu loki (ekkert loftgat)
  • Setja 3-5 mm yfirborð af vatni (þ.e. ekki láta fljóta yfir eggin)
  • Láta suðu koma upp og sjóða svo í 6-7 mín.
  • Hella köldu vatni yfir og brjóta skurnina af
Eggin eru þannig soðin fyrst og fremst með gufunni í stað vatnsins og verða meðalsoðin (ekki linsoðin, ekki harðsoðin), hvítan þéttist og rauðan verður frekar lin en ekki fljótandi eins og í linsoðnum eggjum. Suðan kemur fyrr upp vegna þess að það þarf minni orku til þess að sjóða svo lítið magn vatns.

Fyrir linsoðin egg er nóg að sjóða í 4-5 mínútur en harðsoðin 8-9 mínútur. 

Soðin egg, í sáralitlu vatni

laugardagur, 13. janúar 2018

Bragðmikil tómatsúpa með lauk

Þessi kraftmikla og fljótlega tómatsúpa er góð á köldum vetrardögum.

Undirbúningur: 15 mín. Heildartími: 25 mín.

Innihald (fyrir sex manns)

4 stórir tómatar, sneiddir í litla bita
2 laukar, skrældir og sneiddir
8 hvítlauksgeirar
salt eftir smekk
1 tsk cayenne pipar
1 tsk svartur pipar
2 tsk cumin duft
6 bollar vatn
2 msk matarolía

Aðferð


1. Hitið olíuna og setjið grænmetið og kryddið út í. Látið malla í 3-5 mín við meðalhita.

2. Hellið vatninu út í, látið suðuna koma upp og sjóðið í 5-6 mín.

3. Látið súpuna kólna. Má hakka saman með stafblandara eða pressa aðeins með grænmetispressara (eða hvað sem þetta blessaða eldhúsáhald er kallað á íslensku)

4. Berið fram í skálum. Má bæta við smá smjöri eða rjóma ef vill.

Tómatsúpa með lauk