Verð á flugi
hefur lækkað mikið á undanförnum árum með aukinni samkeppni. Neytendur hafa meira val en áður og nefna má uppgang lággjaldaflugfélaga á borð við Norwegian og WOW Air sem dæmi um áður óþekkta valkosti. Áður þurfti að hringja eða fara á ferðaskrifstofur í
eigin persónu til þess að bóka t.d. sólarlandaferðir, en nú er hægt að bóka á
netinu. Að skipuleggja og bóka ferð á netinu getur hins vegar verið tímafrekt
og þreytandi. Hvert á að fara? Hvað á að gera og skoða?
Flugleitarvélar á
borð við Google Flights og Dohop geta hjálpað fólki að finna ódýrt flug. Ef
fólk er sveigjanlegt varðandi ferðatíma og/eða áfangastaði má t.d. nýta verðdagatalið
hjá Google Flights eða Dohop Go hjá Dohop. Verðdagatal Google Flights birtist
beint neðan við leitargluggana fyrir brottfararstað og áfangastað:
Í dæminu leitaði ég að flugi fram og til baka fyrir tvo fullorðna í júní. Ef mig langar að kanna hvort ég get fengið fimm daga ferð til Berlínar á lægra verði með því að ferðast síðar skoða ég verðgrafið með því að smella á „Price graph“. Þar get ég séð að núna er þetta lægsta verð sem finnst á fimm daga ferð til Berlínar:
Með
Dohop Go má kanna til hvaða áfangastaða er ódýrast að fljúga. Fyrst vel ég mánuðinn júní og athuga hvaða möguleikar koma upp fyrir 5-7 daga ferð. Lægsta verðið er á ferð til London, 9.279 krónur, en vitandi hve dýr borg London er get ég líka valið t.d. Vilníus á 14.324 kr.:
Stundum hækkar verð á flugmiðum sem þú hefur fundið eftir nokkrar leitir og samanburð. Það getur verið byggt á smákökum (e. cookies) í vafranum. Þetta er lúmskt bragð úr markaðsmálum til þess að stressa notendur og fá þá til þess að flýta sér að bóka, þ.e. ef þeir halda að nú geti verðið ætt upp á hverri stundu. Það mætti líkja þessu við sögur af verðbólgudraugnum, Grýlu, Leppalúða og jólakettinum sem hafa stressað Íslendinga eins lengi og elstu menn muna. Þeir sem vilja ekki smákökur í vafrann sinn og meðfylgjandi skyndilegar verðhækkanir á flugmiðum, geta farið huldu höfði með „incognito mode“ sem flestir vafrar bjóða upp á, sbr. þetta skjáskot úr Google Chrome: