Jalfrezi kjúklingarétturinn er eldaður á wok-pönnu eða stórri steikarpönnu ásamt lauk, engifer og hvítlauk í bragðmikilli paprikusósu.
Undirbúningur: 30 mín. Heildartími: 1 klst og 15 mín.
Innihald (fyrir fjóra)
675 g kjúklingabringur
1 msk matarolía
1 tsk cuminfræ
1 laukur, fínsaxaður
1 græn paprika, fínsöxuð
1 rauð paprika, fínsöxuð
2 hvítlauksgeirar, kramdir
2 cm ferskt engifer, fínsaxað
1 msk karrýmauk
1/4 tsk chiliduft
1 tsk kóríanderkrydd
1 tsk cumin
1/2 tsk salt
400 g ferskir eða niðursoðnir tómatar
2 msk ferskur kóríander (saxaður) + aukaskammtur til að skreyta í lokin
Hrísgrjón
Aðferð
Sneiðið kjúklingabringurnar í litla bita (2,5 cm) og skerið alla sýnilega fitu af. Hitið olíuna á pönnunni og steikið cumin fræin í tvær mínútur eða þar til það brakar í þeim. Bætið við lauknum, paprikunni, hvítlauknum og engiferinu og steikið í 6-8 mín. Setjið karrýmaukið saman við og steikið áfram í tvær mínútur. Bætið nú við chili-dufti, kóríanderkryddi, cumin og salti ásamt einni matskeið af vatni. Steikið í tvær mínútur enn. Skellið nú kjúklingabitunum á pönnuna og látið malla í fimm mínútur. Blandið síðan tómötunum saman við og fersku kóríander. Setjið lokið á pönnuna og eldið í 15 mínútur, eða þar til kjúklingabitarnir verða mjúkir. Skreytið að lokum með ferskur kóríander og berið fram með hrísgrjónum.
![]() |
Jalfrezi kjúklingur með Basmati hrísgjónum |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli