Þýskt og austurrískt bakkelsi er vaflaust meðal besta bakkelsis í heiminum. Klassískt dæmi er eplakaka sem kallast á frummálinu Apfelstrudel og á rætur að rekja til Vínarborgar. Hentar mjög vel fyrir sunnudagskaffi eða sem eftirréttur. Hún bragðast vel ein og sér en líka með þeyttum rjóma eða ís.
Undirbúningur: 40 mín. Heildartími: 1 klst og 30 mín.
Innihald
Deig:
250 g hveiti
2 g salt
1 egg
100 ml volgt vatn
20 ml matarolía
Smá hveiti eftir þörfum til að hnoða saman deigið svo það límist ekki við lúkur eða plötu
Fylling:
100 g brauðmylsna
50 g smjör
140 g sykur
10 g kanill
200 g rúsínur
100 g hnetur (má sleppa)
10 g sítrónusafi
800 g epli, kjarnhreinsuð og sneidd
1 slurkur af rommi
Flórsykur til að sáldra yfir kökuna þegar hún kemur úr ofninum. Olía til að smyrja deigið þegar það er tilbúið.
Aðferð
Deig:
Innihaldsefnunum blandað saman í skál og hnoðað saman í deig. Mótað í kúlu og smurt með olíu og látið standa í hálftíma. Deigið ætti að vera vel teygjanlegt að þessu loknu. Nú er deigið rúllað út (á bökunarpappír) í þunna stóra ferkantaða pönnuköku. Smurt með smá olíu eða fljótandi smjöri.
Fylling:
Bræðið smjörið á pönnu. Setjið raspið á pönnuna og ristið þar til það verður gullibrúnt. Blandið kanil og sykri þannig að úr verði kanilsykur. Blandið því næst kanilsykrinum, ristaða raspinu, rúsínum, sítrónusafa, eplum og slurki af rommi saman.
Setjið fyllinguna út á deigið og teigið jaðrana yfir þannig að úr verði lengja. Penslið með olíu og bakið í ofni við 190 gráður þar til kakan verður gullinbrún (um hálftíma). Takið kökuna út og penslið með olíu eða bræddu smjöri. Látið standa í 15 mín og stráið smá flórsykri yfir.